Nokia 5310 XpressMusic - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort

í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 1,0, sm (3/8

tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið

á réttan hátt á líkamanum ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti

tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu við

símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er

tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er

lokið.