Nokia 5310 XpressMusic - Upplýsingar um vottun (SAR)

background image

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til leyfilegra

marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Þessar

viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda

öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum er notuð mælieiningin

SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru

2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR

eru gerðar í hefðbundnum stöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum

mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en

hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

53

background image

ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn

er frá grunnstöð. Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun

tækisins við eyra 1,07 W/kg.
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið verði annað. SAR-gildi kunna að vera

breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.

Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com.

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

54