Nokia 5310 XpressMusic - Þjónustuinnhólf

background image

Þjónustuinnhólf

Síminn getur tekið við þjónustuboðum frá þjónustuveitunni (sérþjónusta). Þjónustuboð

eru tilkynningar (t.d. fréttafyrirsagnir) sem geta innihaldið textaskilaboð eða veffang

þjónustu.
Veldu Sýna til að opna Þjónustuhólf þegar þú færð þjónustuboð. Ef þú velur Hætta eru

skilaboðin færð í Þjónustuhólf.
Ef þú vilt opna Þjónustuhólf síðar velurðu Valmynd > Vefur > Þjónustuhólf. Til að

opna Þjónustuhólf á meðan þú vafrar velurðu Valkostir > Aðrir valmöguleikar >

Þjónustuhólf. Til að opna vafrann og hlaða niður öllum skilaboðunum velurðu skilaboð

og svo Sækja.
Til að breyta stillingum þjónustuinnhólfsins velurðu Valmynd > Vefur > Stillingar >

Still. þjónustuhólfs og svo úr eftirfarandi valkostum:
Þjónustuskilaboð — til að velja hvort þú vilt taka við þjónustuboðum

Skilaboðasía — Veldu Kveikja til að láta símann aðeins taka við þjónustuboðum

frá efnishöfundum sem þjónustuveitan hefur samþykkt.

Sjálfvirk tenging — Veldu Virk til að láta símann opna vafra sjálfkrafa í biðstöðu

þegar þjónustuboð berast. Ef þú velur Óvirk, opnar síminn aðeins vafrann eftir að þú

hefur valið Sækja þegar hann tekur við þjónustuboðum.