Leiðbeiningar um sannvottun fyrir Nokia rafhlöður
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um
að þú notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af viðurkenndum söluaðila Nokia
og skoða heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi skrefum:
Þó svo þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að
rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin
Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds þjónustu-
eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna hvort rafhlaðan
sé ósvikin. Ef ekki er hægt að staðfesta að rafhlaðan sé ósvikin skaltu skila rafhlöðunni
til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.