Nokia 5310 XpressMusic - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Hægt er að hlaða og afhlaða

rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og

biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota

rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með

hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í

langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið og aftengja það síðan

og tengja aftur til að hefja hleðsluna.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki

í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla

getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún

er ekki í notkun.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á

skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt

hleðslutæki eða rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir

slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu

milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til

dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli

skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar-

eða vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan

sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Tæki með of heitri eða

of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum

hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig

sprungið ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og

reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim

með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má vökvi hennar ekki komast

í snertingu við húð eða augu. Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust

með vatni, eða leita til læknis.

U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

48