Sími
Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Stillingar tungumáls — Til að stilla tungumál skjátexta símans velurðu Tungumál
síma. Sjálfgefið val velur tungumálið út frá upplýsingunum á SIM-kortinu. Til að
stilla tungumál fyrir raddskipanir velurðu Tungumál raddk..
● Staða minnis — til að skoða upplýsingar um hversu mikið minni er í notkun
● Sjálfvirkur takkavari — til að læsa takkaborðinu sjálfkrafa eftir að síminn hefur ekki
verið notaður í tiltekinn tíma.
● Raddkennsl —
Sjá „Raddskipanir“, bls. 32.
● Öryggistakkavari — til að beðið sé um öryggisnúmerið þegar slökkt er á
takkavaranum
● Opnunarkveðja — til að skrifa texta sem sést þegar kveikt er á símanum
● Uppfærslur — til að fá hugbúnaðaruppfærslur frá þjónustuveitunni þinni
(sérþjónusta). Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja þennan valkost.
Sjá
„Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum“, bls. 33.
● Val símafyrirtækis — til að velja farsímakerfi í boði
● Kveikt á hjálp.textum — til að velja hvort síminn sýni hjálpartexta
● Opnunartónn — til að láta símann spila tón þegar kveikt er á honum
● Flugkvaðning — til að birta spurningu um hvort nota eigi flugsniðið þegar kveikt
er á símanum. Slökkt er á öllum þráðlausum sendingum símans þegar flugsniðið er
valið
● Staðf. SIM-aðgerðir —
Sjá „SIM-þjónusta“, bls. 47.