Nokia 5310 XpressMusic - Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

background image

Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

Þjónustuveitan getur sent hugbúnaðaruppfærslur beint í símann þinn (sérþjónusta).

Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja þennan valkost.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl,

fyrr en uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst. Taka skal öryggisafrit af

gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.

Stillingar fyrir uppfærslu
Til að leyfa eða leyfa ekki uppfærslur á hugbúnaði og stillingum velurðu Valmynd >

Stillingar > Samskipan > Still. f. stjórn. tækis > Uppf. þjónustuveitu.

Beiðni um hugbúnaðaruppfærslu
1. Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar > Uppfærslur til að biðja

þjónustuveituna þína um hugbúnaðaruppfærslur í boði.

2. Veldu Um núverandi útgáfu til að birta upplýsingar um hugbúnaðarútgáfu símans

og kanna hvort nauðsynlegt sé að uppfæra hana.

3. Veldu Sækja hugb. f. síma til að hlaða niður og setja upp hugbúnaðaruppfærslu.

Fylgdu fyrirmælunum á skjánum.

4. Ef hætt var við uppsetningu eftir niðurhal velurðu Setja upp uppfærslu til að halda

uppsetningunni áfram.

Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur. Hafðu samband við þjónustuveituna ef þú átt

í vandræðum með uppfærsluna.