Textaskilaboð
Tækið styður sendingu textaskilaboða sem eru lengri en sem nemur
lengdartakmörkunum stakra skilaboða. Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri
skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það. Stafir sem nota
kommur eða önnur tákn, ásamt stöfum sumra tungumála, taka meira pláss en
venjulegir stafir og takmarka þannig þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum
skilaboðum.
Lengdarvísir skilaboðanna efst í horni skjásins sýnir hversu margir stafir eru eftir og í
hversu mörgum hlutum þarf að senda skilaboðin.
Áður en hægt er að senda textaskilaboð eða tölvupóstskeyti er nauðsynlegt að vista
númer skilaboðamiðstöðvarinnar. Veldu Valmynd > Skilaboð > Skilaboðastill. >
Textaboð > Skilaboðamiðstöðvar > Bæta við miðstöð, sláðu inn heiti og veldu
númer þjónustuveitunnar.