Texta- eða margmiðlunarskilaboð búin til
1. Veldu Valmynd > Skilaboð > Búa til skilaboð > Skilaboð.
2. Viðtakendum er bætt við með því að fletta að Til: reitnum og slá inn númer
viðtakandans eða tölvupóstfang hans, eða velja Bæta við til að velja viðtakendur úr
valkostum sem eru til staðar. Veldu Valkostir til að bæta við viðtakendum og efni
og til að velja sendikosti.
3. Flettu að Texti: reitnum og sláðu inn texta skilaboðanna.
S k i l a b o ð
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
21
4. Til að bæta efni við skilaboðin flettirðu að viðhengjastikunni neðst á skjánum og
velur gerð efnisins.
5. Ýttu á Senda til að senda skilaboðin.
Skilaboðagerðin er táknuð efst á skjánum og breytist sjálfkrafa eftir efni skilaboðanna.
Þjónustuveitur kunna að taka mismunandi gjald eftir gerðinni. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar.