Valkostir í símtali
Margir þeirra valkosta sem hægt er að velja meðan á símtali stendur flokkast undir
sérþjónustu. Upplýsingar um framboð fást hjá þjónustuveitunni.
Meðan á símtali stendur geturðu valið Valkostir og svo einhvern af eftirfarandi
valkostum:
Valkostir fyrir símtöl eru Hljóðnemi af, Hljóðnemi á, Tengiliðir, Valmynd, Læsa
takkaborði, Taka upp, Skýrleiki tals, Hátalari eða Símtól.
Valkostir símkerfis eru Svara, Hafna, Í bið eða Úr bið, Ný hringing, Bæta í
símafund, Leggja á, Ljúka öllum og eftirfarandi:
● Senda DTMF-tóna — til að senda tónastrengi
● Skipta — til að skipta á milli virks símtals og símtals í bið
● Flytja — til að tengja saman símtal í gangi og símtal í bið og aftengjast í leiðinni
● Símafundur — til að koma á símafundi
● Einkasamtal — til að tala einslega við þátttakanda í símafundi
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því
hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.