Hleðsla rafhlöðunnar
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu símtæki.
Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-3 og AC-4 hleðslutækjum.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur
samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll
ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
S í m i n n t e k i n n í n o t k u n
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
12
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til
notkunar. Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.
2. Stingdu snúru hleðslutækisins í samband neðst á símanum.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Hleðslutíminn veltur á því hvaða hleðslutæki er notað. Það
tekur um 2 klukkustundir og 30 mínútur að hlaða BL-4CT
rafhlöðu með AC-3 hleðslutæki þegar síminn er í biðstöðu.