Ísetning microSD-korts
Aðeins skal nota samhæf microSD kort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu
tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort
sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og
tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
1. Fjarlægðu bakhlið símans.
2. Settu microSD kortið þannig í raufina að
snertiflöturinn á því snúi niður og ýttu því inn þar
til það smellur á sinn stað.