Minniskort
Á minniskorti er hægt að vista margmiðlunarskrár líkt og myndskeið, lög og hljóðskrár
og myndir og gögn í skilaboðum.
Viðvörun: Öll minniskort skal geyma þar sem börn ná ekki til.
Sumar af möppunum í Gallerí með efni sem síminn notar (t.d. Þemu) kunna að vera
vistaðar á minniskortinu.
Upplýsingar um það hvernig á að setja minniskortið í símann og taka það úr honum er
að finna í
„Ísetning microSD-korts“
, bls.
12
og
„microSD kortið tekið úr símanum“
á
bls.
12
.
Minniskort forsniðið
Sum minniskort eru forsniðin af framleiðanda og önnur þarf að forsníða. Þegar
minniskort er forsniðið er öllum gögnum eytt af því varanlega.
1. Minniskort er forsniðið með því að velja Valmynd > Gallerí eða Forrit, möppu
minniskortsins
og Valkostir > Forsníða minniskort > Já.
2. Þegar búið er að forsníða kortið skaltu slá inn heiti fyrir minniskortið.
Minniskortinu læst
Veldu lykilorð (að hámarki 8 stafir) til að læsa minniskortinu fyrir óleyfilegri notkun.
Veldu möppu minniskortsins
og Valkostir > Setja lykilorð.
Lykilorðið er geymt í símanum og þú þarft ekki að slá það inn aftur á meðan þú notar
minniskortið í sama síma. Ef þú vilt nota minniskortið í öðru tæki verður beðið um
lykilorðið.
Til að eyða lykilorðinu velurðu Valkostir > Eyða lykilorði.
Minnisnotkun skoðuð
Þú getur skoðað minnisnotkun mismunandi gagna, og það hversu mikið minni er laust
á minniskortinu til að setja upp nýjan hugbúnað á minniskortinu.
Veldu minniskortið
og Valkostir > Upplýsingar.