Nokia 5310 XpressMusic - Sérþjónusta

background image

Sérþjónusta

Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi.

Margir af valkostum tækisins flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að nota þessa

valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á að

þú skráir þig sérstaklega fyrir þessari þjónustu. Þú færð leiðbeiningar hjá

þjónustuveitunni þinni ásamt upplýsingum og gjald fyrir þjónustuna. Sum símkerfi

kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum

símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða

ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið kann

einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum valmynda að hafa verið breytt, röð þeirra

og táknum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.