Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum möguleikum, bættum
aðgerðum eða aukinni virkni. Til að uppfæra hugbúnað símans þarftu að hafa Nokia
Software Updater forritið og samhæfa tölvu með nýlegri útgáfu af Microsoft Windows
A l m e n n a r u p p l ý s i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
9
stýrikerfi, háhraðainternettengingu og samhæfa gagnasnúru til að tengja símann við
tölvuna.
Til að fá meiri upplýsingar og til að hlaða niður Nokia Software Updater forritinu skaltu
fara á www.nokia.com/softwareupdate eða á vefsíðu Nokia í þínu landi.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kanntu einnig að geta
beðið um uppfærslur með símanum.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með
ljósvakaboðum“, bls. 33.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt öryggi
og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.